Ozon er önnur stærsta netverslun Rússlands.EPA / MAXIM SHIPENKOVRússneska netverslunin Ozon segir að úkraínski herinn hafi gert drónaárás á eitt vöruhúsa fyrirtækisins í Adygeysk í Suður-Rússlandi í nótt. Enginn særðist í árásinni samkvæmt færslu fyrirtækisins á Telegram.Ozon er annað stærsta netverslunarfyrirtækið í Rússlandi, á eftir Wildberries sem er það stærsta. Úkraínski herinn hefur gert tuttugu árásir hið minnsta á vöruhús Wildberries síðan í júlí.Nokkuð færri árásir hafa verið gerðar á Ozon en meðal annars á vöruhús fyrirtækisins í Samara og Makhachkala, í Suður-Rússlandi, auk Sankti Pétursborgar. Árásirnar á vöruhúsin fyrirtækjanna hafa valdið miklu tjóni sem metið er á milljarða dollara.