Milljónir Bandaríkjamanna hafa greitt atkvæði í þingkosningum í dag, sem munu hafa mikil áhrif á síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti forseta. Líklegt er að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni, ef marka má kannanir. Einnig eru líkur á því að þeir nái meirihluta í öldungadeildinni, fari allt á besta veg fyrir Demókrata.