Loksins vann Manchester United

Manchester United vann loksins í kvöld eftir langa bið þegar liðið fagnaði 3-2 sigri á Roma í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Matias Soule kom Roma í 1-0 á 11. mínútu og sex mínútum síðar hafði Donyell Malen aukið forskot Rómverja í 2-0. United-menn fengu ófagra dóma frá sérfræðingum að loknum fyrri hálfleik, en í þeim síðari kveiktu leikmenn liðsins loks á sér.Bruno Fernandes minnkaði muninn í 2-1 með marki úr vítaspyrnu á 58. mínútu og Matheus Cunha reyndist svo hetja United. Hann jafnaði í 2-2 með marki á 83. mínútu og skoraði svo sigurmark leiksins þremur mínútum síðar og tryggði Manchester United þar með dýrmætan 3-2 sigur.Sigurinn var sannarlega langþráður hjá liðinu, sem hafði ekki unnið leik síðan 10. september þegar United vann þá Sabah frá Aserbaídsjan, 4-0 í Meistaradeildinni.
Loksins vann Manchester United

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar