Óscar Puente, samgönguráðherra Spánar, hefur sagt af sér. Hann tilkynnti ákvörðun sína á spænska þinginu í dag þar sem hann bar vitni um tildrög lestarslyss sem varð í landinu í síðustu viku. 69 fórust og tugir slösuðust í slysinu.Annað alvarlegt lestarslys varð í landinu í janúar. Traust til lestarinnviða minnkaði eftir slysin.„Samgönguráðherra í landi eins og Spáni getur ekki setið áfram í embætti eftir tvö svo alvarleg slys á innan við ári,“ sagði Puente.