Andreas Almgren er 31 árs Svíi sem hóf ferilinn sem 800 metra hlaupari og keppt á EM í frjálsíþróttum í þeirri grein árið 2014 og á HM ári síðar. Svo gufaði hann hins vegar upp á stórmótum þar til árið 2022 að hann kom á EM og varð fjórði í 5000 metra hlaupi. Hann vann svo brons í 10.000 metra hlaupi á HM í fyrra og fylgdi því eftir á EM í Birmingham í ágúst með fáheyrðum yfirburðum í 10.000 metra hlaupinu.Almgren hringaði alla keppendur á EM um mitt hlaupið og kom í mark langt á undan öllum öðrum og setti samt mótsmet. Hann bætti svo um betur þegar hann varð heimsmeistari í hálfu maraþoni í Kaupmannahöfn í september á 58 mínútum og sex sekúndum.Svo ákvað hann að prófa að hlaupa heilt maraþon í fyrsta sinn um helgina í New York maraþoninu, einu stærsta hlaupi ársins. Þar skákaði hann hann