Fjármálaráðherra telur að lög hafi ekki verið brotin í samskiptum stjórnar Landsvirkjunar og forstjóra í aðdraganda afsagnar hans. Traust fyrirtækisins skipti gríðarlegu máli og alltaf sé óheppilegt þegar eitthvað kastar rýrð á það. HAFI EKKI SAGT ÓSATT Í RÆÐUSTÓL ALÞINGIS Þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru hörðum orðum um Daða Má Kristófersson, fjármálaráðherra, við upphaf þingfundar í dag. Þeir sögðu orðið ljóst að ráðherra hefði sagt þinginu ósatt eða talað með mjög villandi hætti þegar hann tjáði sig um starfslok Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, í þingsal í síðasta mánuði.RÚV greindi frá því í gær að Hörður hefði gert athugasemdir við starfshætti stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðuneytisins frá því í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar óeðlileg og taldi