Flugvélinni sem brotlenti í Palm Beach í Bandaríkjunum á dögunum var flogið af mjög reynslumiklum flugmanni. Allir níu sem voru um borð í flugvélinni létu lífið þegar hún hrapaði skyndilega til jarðar í íbúðarhverfi en enginn lést á jörðu niðri. Tvö ung börn voru um borð í flugvélinni, ásamt foreldrum þeirra og barnfóstru.