Brotist var inn í Innu, námsumsjónarkerfi framhaldsskólanna, í síðustu viku. Framhaldsskólanemi nýtti sér veikleika í innskráningarkerfi til að fara inn á aðganga kennara og nemenda. Viðkomandi reyndi í einhverjum tilfellum að hafa áhrif á einkunnir og mætingu nemenda.Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar staðfestir að öryggisbrestur hjá Innu sé á borði stofnunarinnar. Þeim hafi borist þrjár tilkynningar um brestinn og unnið sé að því að meta umfang hans. Samkvæmt upplýsingum sem stofnunin sé með hafi hann náð til 16 framhaldsskóla.Í tölvupósti til starfsfólks Menntaskólans við Hamrahlíð kemur fram að nemandi úr öðrum skóla hafi nýtt sér veikleika í Outlook-innskráningu til að fara inn á aðganga kennara, meðal annars í MH. Vitað sé hvaða nemandi standi á bak við verknaðinn. Tekið sé á