Framkvæmdir við sautján hæða risahótel við Skúlagötu í Reykjavík eru í uppnámi eftir að öllum verktökum var vísað af byggingarstað í gær og honum lokað.Turnbyggingin við Skúlagötu hefur ekki farið fram hjá neinum sem keyrir Sæbraut. Mikið hefur verið fjallað um bygginguna sem hefur þótt umdeild og verið gagnrýnd fyrir að falla ekki nægilega vel inn í borgarskipulagið.Það er fyrirtækið Rauðsvík sem stendur að framkvæmdunum og Art-verk, í eigu sömu aðila, var aðalverktaki. Þarna átti að reisa Radisson Red hótel á 17 hæðum með 214 herbergjum. Hönnun hússins hafði vakið mikla athygli en turninn var að hluta úr forsmíðuðum stáleiningum frá Póllandi. Sjálf hótelherbergin komu í nær fullbúnum innfluttum einingum.Morgunblaðið sagði frá því í júlí að framkvæmdir væru langt komnar en samkvæmt myndum