Allir þrír mennirnir sem Íris Helga er ásökuð um að hafa stundað umsáturseinelti gegn segja hana hafa valdið sér miklum sálrænum skaða. Þá sögðu þeir allir að hún væri enn að áreita þá.Allir þrír mennirnir gáfu skýrslu við aðalmeðferð málsins í dag. Fjallað er um skýrslu fyrsta mannsins í fréttinni hér fyrir neðan. Þá gáfu dætur tveggja þeirra skýrslu og þrír fjölskyldumeðlimir eins þeirra. HEYRÐI SNEMMA SÖGUR UM ÍRISI Annar maðurinn til að gefa skýrslu í dag er maðurinn sem birt var fölsk dánartilkynning um í Morgunblaðinu í apríl og heitir Sölvi Guðmundsson. Sölvi segist gruna Írisi Helgu um að hafa birt dánartilkynninguna en sú birting er ekki til umfjöllunar í þessu máli.Sölvi segir að samband sitt og Írisar hafi staðið í um eitt ár, frá því í mars 2023 þangað til í mars 2024. Þau h