Miðflokkurinn er í mestri sókn stjórnmálaflokka samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallups sem birtur var á RÚV í dag. Flokkurinn bætir við sig rúmlega tveimur prósentustigum frá síðustu mælingu og mælist nú með 17 prósenta fylgi. Fylgi annarra flokka er nánast óbreytt. Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins með 29 prósenta fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn fylgir á eftir með 25 prósent. Viðreisn mælist...