Kjördagur er runninn upp í Bandaríkjunum og hækkandi framfærslukostnaður er það mál sem hæst ber, að sögn tveggja Íslendinga sem búa í landinu.„Í kringum mig og ég tel á landsvísu eru það efnahagsmálin. Það er verðlag á húsnæði og matvöru, bensínverð,“ segir Ýr Örlygsdóttir, sem er á þriðja ári í doktorsnámi í Chigaco. Allt tengist þetta dvínandi vinsældum Bandaríkjaforseta og stríðinu við Íran. „Trump hefur til dæmis nefnt að hækkandi bensínverð sé lítið gjald til að koma í veg fyrir að Íran eignist kjarnorkuvopn og Demókratar hafa verið að setja spurningamerki við þetta,“ segir Ýr.Sara Þöll Finnbogadóttir, sem er í skiptinámi í doktorsnámi Durham í Norður-Karólínu tekur í sama streng. „Ég held að það sé matarkarfan, hvað kostar mikið að lifa daginn. Fólk er að fara út í búð og matarkarfa