Hundruð þúsunda skora á frönsk stjórnvöld að loka sjónvarpsfréttastöðinni CNews vegna ásakana um að stöðin kyndi undir hatursorðræðu sem leiði til ofbeldis.Krafan er sett fram á undirskrifarlista á vef franska þjóðþingsins og í gær náði hann 500 þúsund undirskrifum, samkvæmt franska fréttamiðlinum Le Monde. Það þýðir að málið gæti komið til umræðu í neðri deild þingsins, þótt það sé ekki sjálfgefið. HÖRÐ AFSTAÐA GEGN INNFLYTJENDUM Fréttastöðin CNews er í eigu samstæðu milljarðamæringsins Vincent Bolloré og er oft nefnd svar Frakklands við Fox-sjónvarpsstöðinni. Stöðin er þekkt fyrir pólitíska orðræðu sem flokkast utarlega á hægri vængnum en fréttamenn hennar taka afar harða afstöðu gegn innflytjendum.Þá hafa umdeild mál tengst CNews, til að mynda þegar frönsk stjórnvöld vísuðu rússnesku