Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar segir hagræðingu í rekstrinum vera til þess að geta aukið fjárfestingu í hverfum borgarinnar.„Og bætt í skemmtilegu verkefnin til framtíðarinnar. Það er enginn að hagræða að gamni sínu og það er ekki skemmtilegt að segja upp hæfu fólki sem fer nú að gera eitthvað og velta við hverri steinvölu í kerfinu,“ segir Björg.„Við erum að gera þetta til þess að geta farið í fjárfestingu inni úti í hverfunum. Við höfum þar sérstaklega talað um grunn- og leikskóla, íþróttamannvirkin, gangstéttir, sundlaugarnar.“Björg segir eignasafn borgarinnar mjög umfangsmikið sem sinna þurfi. „Reykjavíkurborg hefur ekki verið frábær eigandi að öllum þessum eignum og þessu viljum við snúa við.“„Við vitum það að Reykjavíkurborg á uppundir 400 fasteignir víða um borgina. Við æ