Tveir af stofnendum Visku sjóða, þeir Daði Kristjánsson og Guðlaugur Steinarr Gíslason, hafa keypt út fjóra aðra hluthafa sjóðastýringarfélagsins og fara nú saman með allt hlutafé þess. Félagið breikkaði út starfsemina sína á liðnu ári með stofnun nýs hlutabréfasjóðs sem er um tveir milljarðar að stærð.