Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Leigusamningurinn hljóðar upp á tæplega 39 milljóna króna á mánuði fyrir rúmlega 10 þúsund fermetra, eða samtals rúmlega 9 milljarða króna á næstu tuttugu árum miðað við verðlag dagsins í dag og án tillits til vísitölubreytinga.Samningurinn var gerður þann 9. september árið 2024, rúmum einum mánuði áður en boðað var til þingkosninga um haustið 2024. Þessi samningur var gerður að undirlagi heilbrigðisráðuneytisins en Willum Þór Þórsson var heilbrigðisráðherra á þessum tíma.Eigendur hússins eru að hluta til þeir sömu og eiga einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Heilsuvernd sem rekur hjúkrunarheimili í húsinu í dag fyrir íslenska ríkið. Þetta eru þau Sturla Bj