Ný vísindarannsókn frá University of Bologna vekur spurningar um forsendur leyfis fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum hér á landi. Dýraverndarsamtök segja niðurstöðurnar sýna að endurskoða þurfi leyfi fyrirtækisins Ísteka. Matvælastofnun hefur sagt að leyfið verði tekið til endurmats ef ný vísindaleg gögn koma fram.Rannsóknin var birt í vísindaritinu Veterinary Sciences og byggir á greiningu myndskeiða sem tekin voru á sex blóðmerabúum á Íslandi 2024. Þar var hegðun hryssna og meðferð þeirra metin á meðan á blóðtöku stóð. STERK MERKI UM ÓTTA, KVÍÐA OG STREITU Samkvæmt rannsókninni sýndi meirihluti hryssnanna sterk merki um ótta, kvíða og streitu meðan á blóðtöku stóð. Þá komust höfundar að þeirri niðurstöðu að aðgerðir hefðu ekki verið stöðvaðar þótt hryssur sýndu alvarleg streitueinken