Yfirvöld á Spáni segjast ætla að gera allt sem í þeirra valdi standi til að endurvekja traust almennings á lestarkerfinu. Þessu lýsti samgönguráðherrann yfir í dag.69 manns fórust í lestarslysi í síðustu viku. Annað alvarlegt lestarslys varð í landinu í janúar.Lestarkerfið á Spáni er það næststærsta í heimi. Traust til lestarinnviða hefur minnkað eftir slysin tvö. Slysið í síðustu viku hefur vakið mikið umtal í kosningabaráttu sem stendur yfir fyrir þingkosningar 29. nóvember. „Við ætlum að vinna sleitulaust að því að almenningur treysti hraðlestarkerfinu á ný,“ sagði samgönguráðherrann Oscar Puente á blaðamannafundi í dag.Slysið í síðustu viku varð með þeim hætti að lest á vegum ríkisfyrirtækisins Renfe var ekið aftan á kyrrstæða lest á vegum fyrirtækisins Iryo í um 130 kílómetra fjarlægð