Pólitíkin þvælist fyrir í samgöngumálum

Uppbygging samgönguinnviða og breyting á ferðavenjum er langhlaup og margt spilar inn í það hvort fólk getur telur sig geta notað aðra ferðamáta en einkabíl. Þó að pólitíkin sé nauðsynleg, þar þurfi að taka ákvarðanirnar, þá þvælist hún á köflum töluvert fyrir í uppbyggingu. Þetta segir Lilja Guðríður Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur og framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu. Rætt var við Lilju á Morgunvaktinni í morgun um nýlegar kannanir á ferðavenjum og virka ferðamáta, og um samgönguinnviði á höfuðborgarsvæðinu.„Við erum með sex sveitarfélög hérna og það er ekkert launungarmál að mér finnst það galið sem samgönguverkfræðingi að þurfa að fara með verkefni fyrir sex skipulagsráð, sex bæjarstjóra. Þetta tekur alveg óheyrilega langan tíma, pólitíska ferlið í þessu.“ Hún starfaði í Danmörku
Pólitíkin þvælist fyrir í samgöngumálum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar