Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir, lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, varar við því að Ljósleiðarinn verði seldur úr opinberri eigu. Hún segir slíka sölu geta skapað verulega áhættu fyrir almannahagsmuni og þjóðaröryggi, enda sé um að ræða mikilvæga fjarskiptainnviði landsins. Mynd: Utanríkisráðuneyti Eistlands Í færslu á Facebook sem birtist á dögunum, bendir Herdís á að reynslan af sölu Landssíma Íslands og grunnfjarskiptakerfisins fyrir...