Borgarstjórn boðar viðsnúning í rekstri á næstu árum — Orkuveitan ekki til sölu

„Við hyggjumst selja fyrirtæki í eigu borgarinnar á borð við ljósleiðarann Carbfix og malbikunarstöðina Höfða. Fyrstu skref varðandi ljósleiðarann hafa þegar verið stigin eins og komið hefur fram í fjölmiðlum,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við fréttastofu. Hvað með sjálfa Orkuveituna? „Nei, Orkuveitan verður ekki seld.“Borgarstjórnarmeirihlutinn stefnir á að borgarsjóður verði rekinn með 16 milljarða króna afgangi á næstu fimm árum. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir næsta ár og áætlun til næstu fimm ára voru kynnt í dag.Eftir 6,6 milljarða króna halla á þessu ári, samkvæmt útkomuspá, er gert ráð fyrir 2,8 milljarða afgangi á næsta ári. Borgin hyggst hefja niðurgreiðslu skulda eftir tvö ár og hyggst styrkja getu til fjárfestinga ár frá ári. Hildur segir byggt á varfærnum
Borgarstjórn boðar viðsnúning í rekstri á næstu árum — Orkuveitan ekki til sölu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar