Vilja að Daði Már svari fyrir ásakanir um ósannindi og spillingu

Þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru hörðum orðum um Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, við upphaf þingfundar í dag. Þeir sögðu orðið ljóst að ráðherra hefði sagt þinginu ósatt eða talað með mjög villandi hætti þegar hann tjáði sig um starfslok Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, í þingsal.RÚV greindi frá því í gær að Hörður hefði gert athugasemdir við starfshætti stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðuneytisins frá því í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar óeðlileg og taldi að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu.Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í viðtali við RÚV í morgun að Daði Már þyrfti að svara betur fyrir afsögn Harðar. Hann hafi ekki sagt satt og rétt frá um aðdraganda og ástæður uppsagnar Harðar. LIGGUR
Vilja að Daði Már svari fyrir ásakanir um ósannindi og spillingu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar