Óttast að störf færist frá Suðurnesjum og eftirlitsmenn keyri frá Reykjavík

Fyrir helgi fengu 42 boð um starf hjá Umhverfis- og orkustofnun sem tekur við stórum hluta verkefna sem heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa sinnt. Ný Stofnun atvinnuveganna sem einnig tekur við verkefnum auglýsti 20 störf og er enn að vinna úr umsóknum.Ljóst er að einhverjir fá ekki nýtt starf og Ásmundur E. Þorkelsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, segir líklegt að þar verði aðeins einn eftir, en starfsmenn voru 6 áður. Ljóst sé að matvælaeftirliti verði sinnt frá höfuðborgarsvæðinu. Enn sé óljóst hvernig sveitarfélög manni verkefni sem eftir verða hjá þeim, enda sé reglugerðarbreytingum ólokið.Magnús Kristjánsson, forstjóri Stofnunar atvinnuveganna, segir rétt að Suðurnes hafi verið talin með höfuðborgarsvæðinu þegar starfssvæði voru skilgreind í lögum um stofnunin
Óttast að störf færist frá Suðurnesjum og eftirlitsmenn keyri frá Reykjavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar