VÍS tryggingar hafa verið dæmd til að greiða manni tæpar 15,9 milljónir króna vegna afleiðinga alvarlegs umferðarslyss sem hann lenti í árið 2020. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur á sunnudag. Maðurinn starfaði sjálfstætt sem sendibílstjóri og rak eigið fyrirtæki þegar slysið varð 30. júní 2020. Bifreið var þá ekið í veg fyrir bifhjól hans með þeim afleiðingum að hann rakst...