Frumvarp um náttúru- og innviðagjald verður lagt fram á Alþingi á næstunni. Áformin sættu töluverðri gagnrýni í samráðsferli og ráðherra skoðar hvort hægt sé að koma til móts við þá gagnrýni, meðal annars hvort náttúrupassinn gildi á fleiri staði. Í drögum að frumvarpinu er lagt til að erlendir ferðamenn greiði 4.500 krónur fyrir náttúrupassa sem gildir í eitt ár og veitir aðgang að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum.Á ársfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í síðustu viku var þess krafist að ríkið falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á þessum stöðum. Þá var sívaxandi álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi, líkt og það var orðað í tilkynningu, harðlega mótmælt. Fjallað var um þessi mál í Vikulokunum þar sem rætt var við Harald Þór Jónsson, oddvita í Ske