Dómsmálaráðherra segir nýjum almannavarnabæklingi fyrst og fremst ætlað að fræða fólk um breytt öryggisástand í heiminum.Í sambærilegum bæklingum á Norðurlöndunum er talað um stríð og átök en í íslenska bæklingnum er almennt talað um alvarlega atburði, áskoranir og ástand.Spurð hvort stjórnvöld óttist að hræða fólk segir Þorbjörg Sigríður ekkert Norðurlandanna hafa farið nákvæmlega sömu leið.„Markmiðið er ekki að hræða heldur einfaldlega að fræða um það hvað þarf að vera til staðar inni á mínu heimili, komi til þess að aðstæður breytist í grundvallaratriðum.“Spurð hvort hún telji líklegt að bæklingurinn berist inn á öll heimili í ljósi þess að hann verði ekki borinn út segist Þorbjörg telja að allir sem vilji eignast bæklinginn geti það.Hægt verður að nálgast hann í prentaðri útgáfu á völd