Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir 9,4 milljarða króna viðsnúningi í rekstri á næsta ári, samkvæmt frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 sem Hildur Björnsdóttir borgarstjóri leggur fram í borgarstjórn í dag. Samkvæmt útkomuspá stefnir í 6,6 milljarða króna halla á rekstri A-hluta borgarinnar á þessu ári, en á næsta ári er áætlaður 2,8 milljarða afgangur. A-hlutinn nær til hefðbundinnar starfsemi borgarinnar,...