Þorgerður Katrín spurð út í sjónarmið Ólafs Ragnars á erlendum vettvangi

Erlendir ráðamenn hafa spurt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra út í tjáningu Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, á samfélagsmiðlum. Þeir hafa spurt út í tíst hans og endurtíst á málflutningi rússneskra ráðamanna. RÚSSAR REYNI AÐ BEINA ATHYGLINNI FRÁ ÁRÁSUM ÞEIRRA Þessu greindi Þorgerður Katrín frá í viðtali við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann eftir ríkisstjórnarfund í dag. Hún var spurð um yfirlýsingu rússneska sendiráðsins sem lýsti undrun og harmi yfir því að hún teldi deilingar forsetans fyrrverandi á málflutningi rússneska utanríkisráðherrans alvarlegri en athugasemd framkvæmdastjóra Flokks fólksins við færslu Frakklandsforseta á samfélagsmiðlinum X. Þorgerður Katrín segir yfirlýsingu rússneska sendiráðsins í dag dæmigerða útúrsnúninga ríkis sem reyni
Þorgerður Katrín spurð út í sjónarmið Ólafs Ragnars á erlendum vettvangi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar