Tveir menn voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku fyrir þjófnaðarbrot sem framin voru í Reykjavík og Kópavogi. Annar mannanna var jafnframt sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Mennirnir voru meðal annars sakfelldir fyrir að hafa stolið vörum úr verslunum Bónus, Krónunnar og Kids Coolshop. Verðmæti þýfisins var mismikið en í umfangsmesta einstaka þjófnaðinum var um að ræða vöru að verðmæti tæplega...