Rússlandsher drap 29 manns í árás á hjálparmiðstöð

Rússlandsher drap hið minnsta 29 manns í sprengjuárás á hjálparmiðstöð í þorpinu Komyshuvakha í Zaporísja-héraði í gær, samkvæmt úkraínskum yfirvöldum. Tíu manns eru særðir eftir árásina og 48 er saknað. Héraðsstjórinn segir að í það minnsta níu 3.000 kílóa sprengjum hafi verið varpað á þorpið.Volodymyr Zelenský Úkraínuforseti segir að eftir að Rússar hafi gert fyrstu árásina á skóla sem væri nýttur sem hjálparmiðstöð hafi önnur árás verið gerð á stað þar sem fólk leitaði skjóls.Zelenský sagði í kvöldávarpi sínu að það hafi ekki getað farið fram hjá Rússum að íbúar þorpsins, sem enn eru eftir þar, fái mannúðaraðstoð í skólanum í hverri viku. Þá lýsti Zelenský yfir vonbrigðum yfir því að eftir vopnahlé í bænum Oleshky í síðustu viku hafi verið tækifæri til að taka næstu skref í átt að friði
Rússlandsher drap 29 manns í árás á hjálparmiðstöð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar