Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra þurfa að svara betur fyrir afsögn Harðar Arnarssonar forstjóra Landsvirkjunar. Hann hafi ekki sagt satt og rétt frá um aðdraganda og ástæður uppsagnar Harðar.Daði sagði á Alþingi að uppsögn Harðar hefði verið almenns eðlis og tengst áherslum í stjórn. Engu væri við skýringar stjórnar fyrirtækisins að bæta. RÁÐHERRA GAF VILLANDI MYND AF MÁLINU „Nú er það algjörlega staðfest að svar ráðherra þann 19. október í þinginu var í besta falli ófullnægjandi og gaf mjög villandi mynd af málinu. Ráðherra setti engan fyrirvara um þekkingu sína eða þörf á frekari athugun. Hann sagði hins vegar ítrekað að engu væri við söguna að bæta,“ segir Guðlaugur Þór.Fréttastofa óskaði eftir öllum samskiptum milli