Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir næsta ár og áætlun til næstu fimm ára voru kynnt í dag.Stefnt er að því að borgarsjóður skili 2,8 milljarða króna afgangi á næsta ári og að 12,9 milljarða króna afgangur verði á rekstri samstæðu borgarinnar, það er að segja borgarsjóðs og fyrirtækja í eigu borgarinnar.Borgarsjóður fjárfestir fyrir 23,6 milljarða króna á næsta ári, samkvæmt áætlun næsta árs. Gert er ráð fyrir 2,6 milljarða króna framlögum til byggingar og kaupa á almennum íbúðum. Heildarfjárfesting A og B hluta borgarsjóðs er áætluð 73,8 milljarðar á næsta ári. Í áætluninni er gert ráð fyrir að skuldaviðmið borgarsamstæðunnar verði 113% á næsta ári. Það er vel undir 150 prósenta viðmiði sem er að finna í sveitarstjórnarlögum.