Sigldu með sjúkling þegar þokan stöðvaði þyrluna

Óskað var eftir aðstoð björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum í gærkvöld þegar koma þurfti sjúklingi upp á land. Þoka í Eyjum kom í veg fyrir að þyrla Landhelgisgæslunnar gæti lent og því var ákveðið að fara sjóleiðina.Vakthafandi læknir hafði samband við Björgunarfélag Vestmannaeyja í gærkvöld og bað um aðstoð við að koma sjúklingi hluta leiðarinnar til Reykjavíkur. Áhöfn björgunarskipsins Þórs var kölluð út á hæsta forgangi og hálftíma eftir að beiðni um aðstoð barst var sjúklingurinn kominn í Landeyjahöfn. Þaðan var hann fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.Greint er frá þessu á Facebook-síðu björgunarfélagsins. Þar er áhöfninni þakkað fyrir skjót viðbrögð og sjúklingnum óskað skjóts og góðs bata.
Sigldu með sjúkling þegar þokan stöðvaði þyrluna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar