Barn í New York-ríki í Bandaríkjunum lést nýlega vegna mislinga. Það er fyrsta dauðsfallið í ríkinu í 30 ár, tilkynntu yfirvöld í gær. Ríkisstjórinn lýsti yfir neyðarástandi í október eftir að sjúkdómurinn hafði greinst þar og í næstu ríkjum.Útbreiðsla mislinga hefur ekki verið meiri í Bandaríkjunum í 35 ár. Sjúkdómurinn hefur greinst í 47 ríkjum.Árið 2000 lýstu bandarísk yfirvöld því yfir að tekist hefði að uppræta sjúkdóminn. Árin áður höfðu bólusetningarherferðir gengið vel. Viðsnúningurinn nú er rakinn til vaxandi vantrúar á bólusetningar og í garð heilbrigðisyfirvalda.Mislingaútbrot á baki barns. Mynd úr safni.Shutterstock / Phichet Chaiyabin