Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gefur í dag út bæklinginn Verum viðbúin, sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins.Bæklingurinn verður sendur rafrænt í gegnum Ísland.is en honum verður einnig dreift í prentaðri útgáfu á völdum stöðum um land allt frá miðvikudegi til sunnudags, með aðkomu björgunarsveita Landsbjargar, samhliða sölu Neyðarkallsins.Greint var frá gerð bæklingsins í janúar á síðasta ári. NÁTTÚRUHAMFARIR, RAFMAGNSLEYSI OG SAMFÉLAGSLEGAR ÁSKORANIR Í tilkynningu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir að bæklingnum sé ætlað að veita almenningi upplýsingar um hvernig hann geti undirbúið sig fyrir aðstæður sem geta raskað daglegu lífi.Þar eru nefnd sem dæmi náttúruhamfarir, veður, rafmagnsleysi, fjarskiptatruflanir og aðrar samfélagslega