Iceland Airwaves hefst á fimmtudaginn og stendur yfir í 3 daga og kvöld í miðborg Reykjavíkur.Hátíðin hefur verið haldin á hverju ári frá 1999 og líka í Covid, en þá með breyttu sniði.En hvernig byrjaði þetta nú allt saman?Í Rokklandi vikunnar voru rifjuð upp brot úr Airwaves sögunni og í einu þeirra frá 2018 sagði Magnús Stephensen fyrrum markaðsstjóri Icelandair í Bandaríkjunum frá því hvernig hugmyndin að þessari merkilegu hátíð kviknaði um áramótin 1998 og 1999.