Vegagerðin hvetur ökumenn í Ísafjarðardjúpi, á Tröllaskaga og sunnanverðum Austfjörðum til að fara varlega í dag. Búast má við vindhviðum allt að 25 metrum á sekúndu vegna allhvassrar suðvestanáttar. Nokkuð dregur úr vindi síðdegis en þó er útlit fyrir vindhviður á Tröllaskaga fram á nótt.Hviðurnar geta reynst varhugaverðar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.Vegagerðin varar við vindhviðum.RÚV / Birgir Þór Harðarson