Rúmgott einbýlishús við Hlíðarás í Ölfusi er komið á sölu en ásett verð eignarinnar er 158,5 milljónir króna. Húsið var reist árið 2014 og stendur á eins hektara eignarlóð, eða 10.000 fermetrum. Samkvæmt skráningu HMS er íbúðarhúsið 202,9 fermetrar að stærð. Við það bætist 58,5 fermetra tvöfaldur bílskúr og 18 fermetra gestahús. Heildarstærð mannvirkja á lóðinni er því 279,4 fermetrar....