Tafir urðu á umferð í Ártúnsbrekku á níunda tímanum í morgun þegar fjórir bílar lentu í árekstri. Ekki var að sjá að nokkur hefði slasast alvarlega en einn var fluttur með sjúkrabíl til skoðunar á slysadeild. Áreksturinn olli nokkrum töfum á för þeirra sem voru á leið í vesturátt. Aðeins er hægt að keyra um eina akrein þeim megin götunnar þegar þetta er skrifað. Ártúnsbrekka. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar Visage