Sádiarabíski olíurisinn Saudi Aramco tilkynnti í dag að hagnaður fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi hefði aukist um 34,6 prósent frá sama tímabili í fyrra. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur haldið hráolíuverði háu á sama tíma og ítrekaðar árásir hafa verið gerðar á orkumannvirki Sádi-Arabíu. Hútar í Jemen, sem njóta stuðnings Írans, hafa ítrekað gert árásir á sádiarabísk olíuflutningaskip, olíuleiðslur, birgðastöðvar og olíuhreinsunarstöðvar...