Þetta eru atriðin sem tónlistarsérfræðingar Rásar 2 ætla ekki að missa af á Airwaves

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefst formlega á morgun með opnunarviðburði á hjúkrunarheimilinu Grund. Halla Tómasdóttir forseti Íslands setur hátíðina og á eftir henni stíga Rakel og Lón á stokk og flytja ljúfa tóna.Líkt og áður geta hátíðargestir valið úr fjölmörgum viðburðum svo Menningarvefurinn leitaði á náðir nokkurra tónlistarsérfræðinga á Rás 2 til að kanna hvað væri efst á baugi hjá þeim í ár. SPENNTUST FYRIR LIIM Lovísa Rut Kristjánsdóttir í Popplandi er búin að kortleggja tónleikaplanið. Hún ætlar um víðan völl og er spenntust fyrir bandaríska rapparanum Liim.„Af íslenskum flytjendum er ég spennt fyrir mörgum. Ég hugsa að ég hefji leika á tvíeykinu Marsibil á Rosenberg á fimmtudeginum kl. 19:00. Algjör stemning að kíkja á nýja Rósenberg, vonandi verður einhver að laumast t
Þetta eru atriðin sem tónlistarsérfræðingar Rásar 2 ætla ekki að missa af á Airwaves

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar