Litli ólánsbærinn Zaña í Perú, þar sem um 4000 manns búa, hefur um aldir verið talinn vera undir áhrifum bölvunar. Bæjarbúar binda nú vonir við að heimsókn Leós XIV páfa síðar í mánuðinum muni aflétta bölvuninni.Á tíma spænskra yfirráða var Zaña þekktur fyrir að vera auðugur verslunarbær. Þar voru byggðar margar glæsilegar kirkjur og íbúarnir lifðu í vellystingum. Bærinn er einnig frægur fyrir það að trúboðinn Toribio de Mogrovejo, sem sneri frumbyggjum Perú til kristni, lést þar árið 1606.Seinna varð bærinn reglulega fyrir árásum sjóræningja og árið 1720 var hann gjöreyðilagður í gríðarlegu vatnsflóði. Kirkjurnar hrundu og hrægammar hreiðruðu um sig í rústum þeirra.Því hafa ýmsar sögur um guðlega refsingu spunnist um bæinn sem sumir rekja til prests sem var myrtur á nýlendutímanum. Morðið