Tvö börn létust í flugslysinu í Flórída

Tvö börn, tveggja og fjögurra ára gömul, voru meðal þeirra níu sem létust þegar lítil flugvél hrapaði á Flórída í gær. Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum greinir frá því að veðurskilyrði hafi sennilega átt stóran þátt í slysinu.Flugvélin, sem var af gerðinni Learjet 60, lagði af stað frá Austin í Texas klukkan 15.37 að íslenskum tíma og hélt til Bahamaeyja en á leiðinni hrapaði vélin til jarðar á Palm Beach í Flórída. Mikill eldhnöttur gaus upp þegar flugvélin skall á jörðinni.Aðstoðarflugmaðurinn var tvítug stúlka, Natalia Gadelha Filgueiras, en hún hafði verið með flugpróf frá 17 ára aldri og hafði skráð yfir 1300 flugtíma.Yfirvöld hafa ekki staðfest hverjir voru um borð en nokkrir fjölmiðlar, þar á meðal CNN, herma að fjölskyldumeðlimir þeirra sem létust hafi borið kennsl á þ
Tvö börn létust í flugslysinu í Flórída

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar