Þó að Demókratar vinni þingkosningarnar í Bandaríkjunum verður ekki auðvelt fyrir þá að ná málum í gegn í þinginu án málamiðlana, segir Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.Bandaríkjamenn ganga til kosninga á morgun og niðurstöðurnar gætu valdið straumhvörfum í bandarískum stjórnmálum. Kosningar í Bandaríkjunum geta reynst afdrifaríkar fyrir allan heiminn. Kosið verður um öll 435 sætin í fulltrúadeildinni, sem er neðri deild þingsins, og 35 af 100 sætum í öldungadeildinni. Einnig verður kosið um ríkisstjóra á 39 stöðum og á ríkisþing og í sveitastjórnir. GÆTU KOMIÐ Í VEG FYRIR AÐ TRUMP KOMI SÍNU FÓLKI AÐ Samkvæmt nýjustu könnunum eru Demókratar með forskot á Repúblikana í nær öllum sjö ríkjunum sem ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta í öldungadeild