Varaformaður Samtaka gegn fátækt á Íslandi kallar eftir skjótum aðgerðum stjórnvalda þegar kemur að fátækt barna. Hún segir margt gott í nýrri aðgerðaáætlun stjórnvalda. 10.500 BÖRN BÚA Á HEIMILUM UNDIR LÁGTEKJUMÖRKUM Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lagt fram fyrstu heildstæðu stefnuna og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna.Stefnan byggir meðal annars á nýrri skýrslu á vegum Háskóla Íslands, þar sem fram kemur að um 10.500 hundruð börn á Íslandi búa á heimilum sem eru undir lágtekjumörkum.Inga Sæland, barnamálaráðherra, sagði á málþingi í síðustu viku að nauðsynlegt væri að ráðast í þjóðarátak gegn fátækt barna á Íslandi.Tuttugu og einn milljarður verði settur í barnabótakerfið á næsta ári.„Það er margt mjög gott og flott í þessari stefnu, eins og að skoða eigi barnabótakerfið, sem er