Útlit er fyrir að flugvél sem hrapaði nánast lóðrétt til jarðar í Palm Beach í Bandaríkjunum í gær hafi verið að rifna í sundur á leiðinni niður. Rannsakendur búast við því að brak úr flugvélinni megi finna langt frá því þar sem flugvélin brotlenti í íbúðarhverfi. Níu voru um borð og létu allir lífið.