Starfandi tollverðir á Íslandi eru nú 93 samanborið við 124 árið 2018. Formaður Tollvarðafélags Íslands hefur þungar áhyggjur af þróuninni á þriðja metári fíkniefnahaldlagninga í röð og lýsir eftir auknum áhuga stjórnvalda nú þegar löggæsluáætlun gerir ráð fyrir auknu samstarfi tolls og lögreglu.