Þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun eru mikilvægustu kosningar í manna minnum, sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í lokaávarpi fyrir kosningar morgundagsins.Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í þingkosningum á miðju kjörtímabili (e. midterm elections) á morgun þar sem öll sætin í fulltrúadeildinni eru undir og um þriðjungur í öldungadeildinni.„Þetta er síðasti dagurinn fyrir kosningar á miðju kjörtímabili, mikilvægustu kosningar á miðju kjörtímabili á okkar lífstíð, að ég tel,“ sagði Trump í ræðunni. Hann eyddi þó mestum tíma í að ræða endurbætur sem hann hefur látið gera á minnisvörðum í Washington, þá sérstaklega á tjörninni við Lincoln-minnismerkið í Washington. Hann flutti ávarpið við tjörnina. DEMÓKRATAR MEÐ FORSKOT Demókratar eru taldir hafa forskot á Repúblikana í nær öl