„Trump gæti farið að einbeita sér meira að utanríkismálum“

Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór á þrjá kosningafundi í gær til að vinna hylli Repúblíkana fyrir kosningarnar. Hann skaut þar föstum skotum á nokkra mótframbjóðendur. Hann segist sigurviss fyrir kosningarnar þó að kannanir bendi til annars, meðal annars frá New York Times.Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri, sem starfaði í háskólanum í Maine í Bandaríkjunum í 30 ár og er með doktorspróf í stjórnmálafræði, býst við að kosningaþátttaka verði meiri en venjulega en alla jafna er hún dræm. Hún segir að ef Repúblíkanar tapa báðum deildum þingsins muni Donald Trump beita sér meira í utanríkismálum en áður.
„Trump gæti farið að einbeita sér meira að utanríkismálum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar