Bróðir manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík í byrjun árs 2024 vill að bæjarstjórn Grindavíkur hafi forgöngu um að lík bróður hans verði grafið upp. Leitin sem ráðist var í í síðustu viku hafi verið fjölskyldunni vonbrigði.„Eins og þetta horfir við okkur, og vert er að taka fram að við fylgjumst með þessu í gegnum fjölmiðla að miklu leyti, þá upplifðu allavega systur mínar og börn Lúlla einhvers konar sjónarspil. Þetta tók stuttan tíma,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024.Að tilstuðlan lögreglustjórans á Suðurnesjum var ráðist í leit í síðustu viku. Leitin stóð yfir í um sjö klukkustundir.„Ég fæ að vita rétt upp úr átta að það eigi að hefja aðgerðir. Það eru fréttir fluttar af því laust fyrir hádegi að þá séu sigmenn að